Frábær dagur í dag. Hrísnes Skuggi II gerði sér lítið fyrir og varð besti Labrador rakki dagsins. Fór síðan á móti bestu tík sömu tegundar og laut í gras…bókstaflega þar sem hún var að lóða og átti kallinn í mestu vandræðum með að hemja sig. Hins vegar var hann mjög ákveðinn í keppninni í rökkunum og var þetta klárlega hans dagur !! Tíkin hlaut BOB er þýðir best of breed og Skuggi hlaut BOS eða best opposite sex !! En dómurinn er svohljóðandi: 3 yrs old nice type male. good proportions. Pleasing head + expression. Correct mouth. good neck +topline+ tailset. w.acc. ottertail. corr. chest. Moves +shows well.. Exelent, besti rakki tegundar og íslenskt og norðurlanda meistarastig.

Óskum við Óla eiganda Skugga innilega til hamingju.