Þann 04 júní fæddust hjá okkur Labradorhvolpar, 6 svartir og 1 gulur  undan Hrísnes Esju og Leiru Krumma 5 tíkur og 2 rakkar. Foreldrarnir eru bæði með frábært geðslag og heilbrigði. Esja hefur verið að gefa fallega hvolpa með yndislegt geðslag.

Við eigum ólofað, 4 svartar tíkur og einn geggjaðann svartan strák.

Allar nánari upplýsingar veitir Þurý í tölvupósti HÉR eða í síma :661-5506

Mynd: Hrísnes Ugla II

Hrísnes Esja hefur verið að gefa afkvæmi með frábært geðslag og er sjálf undan einum fallegasta hundi á Íslandi Buckholt Cecil (Bassi) sem hefur ma. unnið hundasýningu HRFÍ en þar keppa á milli 800-900 hundar um þann titil. Einnig má nefna Hrísnes Uglu II sem er dóttir Esju og rétt rúmlega árs gömul búin að vinna tegundina 2 sinnum á þessu ári sem sagt BOB (Best of Breed) og er orðin ungliðameistari, Reykjavík Winner 2018 og hefur keppt um besta hund sýningar.