Balti fékk Frama afhentan í dag eftir 2ja mánaða tamningu hjá Austurkoti. Reffilegur klár og fóru þeir í sinn fyrsta reiðtúr í kvöld. Allt gekk að óskum og hver veit nema Balti sé kominn með framtíðarhest í hendurnar. Hann og mamma hans munu svo ríða honum í sumar og svo fer hann í gangsetningu með haustinu.