Nú styttist í að Hrísnes Vaka muni gjóta og ættu að koma hvolpar á næstu 5-7 dögum ef allt gengur að óskum. Vaka okkar ber brúnagenið og var pöruð með Nenuoramos Winter Boy brúnum rakka, því má ætla að það komi bæði brúnir og svartir hvolpar þó maður viti auðvitað ekki hverning  sú skipting verður. Báðir foreldrar eru með frábært geðslag og heilbrigði.  Hlökkum mikið til að sjá hvað kemur.