Erum í skýjunum með árangurinn í kvöld þar sem Hrísnes Moli IV varð besti hvolpur tegundar BOB 6-9 mánaða og keppti um besta hvolp sýningar og í 2. sæti Hrísnes Akkiles, 3. sæti Hrísnes Fenrir, 4. sæti Hrísnes Húni Snæbjörn og í 6. sæti Hrísnes Skuggi III í rökkum og allir með heiðursverðlaun. Í tíkum varð Hrísnes Una í 3.sæti með heiðursverðlaun og Hrísnes Java Lísa í 5. sæti og allir þessir hvolpar fengu frábæra dóma. Það sannaði sig í kvöld frábæra geðslagið í Hrísnes hundunum þar sem prinsessan á heimilinu hún Hrísnes Una sofnaði í miðri sýningu eins og mamma hennar gerði forðum daga þegar að hún var á sama aldri.

auna

Hrísnes Una, Nizzudóttir

nizza

Hrísnes Nizza