Efnt var til smá hitting með afkomendum Dimmu okkar (og eigendum þeirra) í Paradísardal. Þetta var mjög skemmtilegt bæði fyrir hunda og menn. Mikið hlaupið og leikið við hvorn annan enda margir hundar mættir auk Dimmu mömmu þeirra, einnig fylgdu einhverjar brúnar frænkur og frændur, enda sumir sem eiga líka Hrísnes brúna labba.  Það mætti segja að keppni hafi verið í tungulafi og eigendur allra þurftu ekki mikið að huga að sínum hundum sunnudagskvöld því allt var á útopnu frá fyrstu mínundu til þeirrar síðustu.

img_9135-2

img_9035