Þessi dásamlegi strákur heitir Hrísnes Nói. Hrísnes Nói er svo heppinn að eignast frábæra fjölskyldu á Álftanesinu. Ég efast ekki um að hann eigi eftir að verða mikill gleðigjafi fyrir alla á heimilinu. Hrísnes Nói er einstaklega ljúfur og góður strákur sem heillar mann alveg upp úr skónum. Hann er alltaf til í að leika en samt alltaf til í kela og knúsast og kúra hjá manni.

noi-1-of-1-3