Þessir yndislegu hvolpar eru nú orðnir 5 vikna úr þessu gullfallega goti undan Ljóssins Dimmu II og Hólabergs Famous Sport sem fæddust 22 október. Frábært geðslag og heilbrigði er á bak við hvolpana. Sport hefur verið notaður í veiði og hefur verið að gera það gott á sýningum er Íslenskur og Alþjóðlegur meistari. Dimma hefur verið að gefa frábær afkvæmi sem hafa verið að gera það gott á sýningum, veiði, hlýðni og sem heimilishundar. Hrísnesræktun er virkilega stolt af þessu goti bæði útlitslega og einnig er geðslagið geggjað í þessum hvolpum.

Og auðvitað eins og allir nútíma voffar þá eru þeir búnir að gera sína eigin Facebooksíðu sem hægt er að fara inná HÉR