Já hún Hrísnes Selma er orðin heimsóknarvinur hjá Rauðakross Íslands og kíkir á eldriborgara sem láta vel að henni og hafa mikið gaman að. Selma þurfti að þreyta ýtarlegt próf hjá Rauðakrossinum og stóðst prófið með miklum sóma sem er nú ekki sjálfgefið og alls ekki allir hundar með rétta skapgerð í þessa vinnu.  Óskum við Önnu og Selmu til hamingju og ekki síður því fólki á dvalarheimilum sem fær að njóta hennar.  kv Hrísnesræktun