Við erum himinlifandi yfir að loksins hafi Tommi (Loldrup Loving Labs Tom The Son of A Legend) komist til Íslands til okkar, hann átti að koma í maí til okkar en vegna þessa ástands þá var ekki hægt að koma honum heim fyrr en núna í lok ágúst. Við keyptum hann af Loldrup Loving Labs ræktun í Danmörku en faðir hans er margfaldur meistari frá Nýja-Sjálandi og er því óhætt að segja að þetta er aldeilis nýtt blóð inní flóruna hér á landi. Tommi er aðeins 10 mánaða núna, mikið þroskaður miðað við aldur þó að vöðvabygging á eftir að aukast of hann að þrekkna þegar fram líða stundir. Við erum í það minnsta mjög ánægð með kappann enda bæði fallegur og með frábært geðslag. Vonandi að við fáum einhverja hvopla undan honum þegar framlíða stundir.

Faðir:NZ. SPL. GRAND CH.CROFTSWAY TOMMEE

(ENG.CH.Cambremer Tom Cobbley of Charway – Croftsway Zarita)

Móðir: Loldrup Loving Labs Venus Valentina

(SECH Tjottes Win The Crowd x Nutella Bella Mare)