Frábær árangur á hvolpasýningu HRFÍ 25.janúar 2014.  Hrísnes Sonja keppti í hvolpaflokki 6-9 mánaða og var valin besti hvolpur tegundar (Cavalier) og keppti um besti hvolpur sýningar en hún varð fjórði besti hvolpur sýningar sem er aldeilis flott hjá þessari snátu.  Stelpurnar mínar stóðu sig ekkert smá vel Alexandra sýndi hana með mikilli príði og Sonja sýndi sig eins og best verður á kosið. Sonja er dóttir Sylvíu okkar og Ljúflings Dýra.

Hrísnes Sonja