Í dag var Cavalierinn sýndur.  Þvílík helgi og erum við í skýjunum yfir árangri Hrísnes hundanna.

Hrísnes Tinni 1. sæti í ungliðaflokki með excellent, ungliðameistarastig og meistaraefni og fjórði besti rakkinn.
Hrísnes Max 2. sæti í meistaraflokki með meistaraefni og þriðji besti rakkinn.
Hrísnes Selma með excellent. 
Hrísnes Sonja RW15 1. sæti í Opnum flokki með excellent og meistaraefni og endaði svo besta tíkin BOS með Íslenskt meistarastig og Alþjóðlegt meistarastig.Sonja er þá komin með seinasta Íslenska meistarastigið og því orðin Íslenskur meistari og þrjú Alþjóðleg meistarastig og vantar tvö alþjóðlegt meistarastig til að verða einnig alþjóðlegur meistari.

 

tinni

Hrísnes Tinni með Önnu sýnanda sínum, frábærlega sýndur.

sonja

Hrísnes Sonja með sýnanda sínum henni Berglindi sem er algjör meistari í að sýna