Á júlí sýningunni keppti Hrísnes Nótt í Opnum flokki og hlaut Excellent og stóð efst hjá tíkunum, og keppti því um besta tík tegundar og gerði sér lítið fyrir og vann það, þá mætti hún besta rakka tegundar og vann hann einnig og var því valin Besti Hundur Tegundar (BOB) og hlaut íslenskt og alþjóðlegt meistarastig og frábæran dóm..
Innilega til hamingju með fallegu Nótt kæra Birna.

Hrísnes Nótt er undan Ljóssins Dimmu II og C.I.E. ISShCh Buckholt Cecil IS14908/10 (Bassi) en Bassi er glæsilegur hundur sem hefur ma verið valinn hundur sýningar “Best of Show” sem verður að teljast glæsilegur árangur á sýningu með yfir 500 sýnda hunda.

Dómsorð:

Very nice bitch. Lovely head + expression.
Excellent shape of body.
Very nice movement. + character + coat + condition

Hrísnes Nótt

Hrísnes Nótt